Margt smátt gerir eitt stórt

Það er aldrei of seint að byrja að spara. Við bjóðum upp á fjölbreyttar sparnaðarleiðir sem taka mið af mismunandi markmiðum og aðstæðum hvers og eins.

Hvort sem þú vilt byggja upp langtímasparnað eða hafa sveigjanlegan aðgang að peningunum þínum, þá finnum við lausn handa þér.

Það er til dæmis auðvelt að setja sér markmið og spara í Arion appinu!

Vikulegir vextir á Fríðindareikningnum

Með Fríðindareikningnum bjóðum við hæstu vexti á óbundnum reikningi á Íslandi í dag – og þeir eru greiddir í hverri viku, sem ekki hefur tíðkast hér á landi.

Þetta þýðir að þú færð bæði vexti af upphaflegri fjárhæð og þeim vöxtum sem bætast við í hverri viku. 

Sparnaðurinn þinn vex því hraðar en nokkru sinni fyrr!

Nánar um Fríðindareikninginn

Fyrsta skrefið í átt að eigin heimili

Íbúðasparnaður er frábær kostur ef þú vilt leggja drög að framtíðinni.

Seinna meir getur þú nýtt sparnaðinn til að kaupa húsnæði – og ef plönin breytast getur þú jafnvel notað hann í eitthvað allt annað.

Nánar um íbúðasparnað

Settu sparnaðinn þinn í áskrift

Vöxtur 30 er frábær óverðtryggður reikningur fyrir þau sem vilja góða vexti og stuttan binditíma. 

Vöxtur verðtryggður hentar hins vegar vel þeim sem vilja að sparnaðurinn haldi verðgildi sínu í verðbólgu.

 

Nánar um ólíka sparnaðarreikninga

Byrjaðu að kaupa í sjóðum Stefnis

Þú getur með einföldum hætti stofnað áskrift í sjóðum.

Við tökum engar kaup- eða söluþóknanir af sjóðaviðskiptum í appi og netbanka og engin krafa er um lágmarkskaup.

Nánar um reglulegan sparnað í sjóðum

Spörum fyrir framtíð barnanna

Því fyrr sem þú byrjar að spara fyrir barnið þitt, því betra.

Áskrift að sparnaði leggur góðan grunn að fjárhagslegu öryggi barnsins og býr þannig í haginn fyrir það seinna meir.

Nánar um sparnað fyrir börn

Greinar sem þú gætir haft áhuga á