Forsendur fyrir láni
- Veðhlutfall má aldrei fara yfir 70% af markaðsvirði við kaup og fasteignamati við endurfjármögnun
- Samkvæmt reglum frá Seðlabanka Íslands má greiðslubyrðarhlutfall, sem er hlutfall af tekjum og fasteignalánum, ekki vera hærra en 35% eða 40% hjá þeim sem eru að kaupa í fyrsta skipti
- Lánið er alltaf á fyrsta veðrétti
- Lánstími: 5-40 ár
- Lágmarkslán er kr. 1.000.000 við hverja lántöku
Krafa um aukinn afgang í greiðslumati:
Ef heildarumsókn íbúðalánsins er hærri en 70.000.000 kr. þarf afgangur í greiðslumati að vera 10.000 kr. fyrir hverja milljón umfram 70.000.000 kr.
Dæmi: Fyrir 80.000.000 kr. íbúðalán þarf að vera með 100.000 kr. afgang í greiðslumati.
Upplýsingar um lántökugjald er að finna í verðskrá bankans, sjá hér.
Hægt er að fá nánari upplýsingar á ibudalan@arionbanki.is.